Lúxus í Mílanó

Tískuvikan í Mílanó fyrir næsta vetur var í vikunni sem var að líða og það var nokkuð mikið um lúxus eins og venjulega. Við erum að tala um loðfeldi, glamúr og eðalefni. Í stað þess að fjalla um hverja sýningu fyrir sig ætla ég að skipta þessu niður í trend að þessu sinni.

milan-gucci

Hjá Gucci, Moschino og Roberto Caballi mátti sjá áhrif frá Rússlandi með þjóðlegum munstrum. Í bland við rússneska þemað var svolítill rokkandi og hippaleg snið.

milan-bottegaveneta

Sokkabuxur í öllum mögulegum litum; grænum, fjólubláum, appelsínugulum, rauðum og bláum voru virkilega áberandi hjá hönnuðum eins og Bottega Veneta, Emilio Pucci, Iceberg og Moschino. Litirnir voru yfirleitt ekki mjög sterkir og oftar en ekki harmoneruðu sokkabuxurnar við skóna og dressið.
milan-mauriziopecoraro

Þessi týpísku ítölsku munstur voru hjá hönnuðum Maruizio Pevoraro, Missoni og Emilio Pucci.

milan-marni

Hjá öllum stóru tískuhúsunum mátti sjá loðfeldi. Þeir voru stór partur af sýningum Marni, Fendi og Gucci.

milan-emiliopucci1

Skíðalúkkið með tilheyrandi loðkrögum og dúnúlpueffektum var bæði á sýningarpöllum Emilio Pucci og Iceberg.

grofarprjonaflikur

Iceberg, Roberto Cavalli og MaxMara áttu það sameiginlegt að sýna grófar prjónaflíkur, oft með skemmtilegum smáatriðum eins og fléttum.

 

milan-missoni

Skautaskórnir halda áfram frá þessum vetri til þess næsta eins og var að sjá hjá Missoni, Prada, Iceberg og Emilio Pucci. Skautaskórnir voru í flestum tilfellum reimaðir upp að ökkla en náðu einnig upp að hnjám eða jafnvel upp á læri.

 

milan-prada

Sýning Prada einkenndist af blúndum og aftur blúndum. Einnig mátti sjá blúndur í sýningum La Perla, Roberto Cavalli og Versace.

milan-maxmara2

Glamúrinn var ekki langt undan og glitrandi steinar prýddu margar flíkurnar. Lína MaxMara var nokkuð stílhrein, en glamúrinn poppaði hana þó upp. Aðrar sýningar sem innihéldu glamúr og glans voru t.d. 6267, Alberta Ferretti og Derercuny.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband