Færsluflokkur: Stíll

Emma Nygren

Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að skoða götustíl, þ.e.a.s. stíl 'venjulegs' fólks sem hefur ekki endalausa peninga milli handanna. Þegar maður er bundin við að versla mestmegnis í ódýrari verslunarkeðjum getur verið erfitt að líta ekki út eins og allir aðrir. Þá getur skemmtileg samsetning og öðruvísi sjón á hlutina breytt öllu. Fyrir utan að skoða götustílsbloggsíður eftir borgum, hef ég reglulega rekist á blogg einstaklinga sem sýna myndir af fatasamsetningu hvers dags.

Emma Nygren er tvítug og býr í Stokkhólmi. Ég varð strax hrifin af stílnum hennar og hef fylgst með blogginu í nokkurn tíma. Þótt að bloggið sé á sænsku og ég hafi verið að reyna að lesa mig í gegnum það á dönskukunnáttunni einni, er það nú einu sinni þannig að myndirnar segja allt sem segja þarf. Myndatakan sjálf er skemmtileg, uppstillingarnar flottar og myndirnar svolítið hráar. Í bakgrunni er flott íbúðin hennar sem er minimalísk með vott af skandinavískum einfaldleika, en hún hefur mikinn áhuga á allskyns hönnun og arkitektúr og kemur það fram í heimili hennar.

Stíllinn hennar er nokkuð klassískur þar sem svartur og aðrir plain litir eru í aðalhlutverki. Það er samt alltaf athygli á minnst eina flíka, hvort sem það er djarfur litur eða skemmtilegir aukahlutir á borð við klúta. Fatnaður úr verslanakeðjum eins og H&M, Topshop og Zara er blandað saman við ung og fersk sænsk merki á borð við Acne, Monki og J Lindeberg og að lokum eru svo smáatriðunum gefinn gaumur með fallegum vintage hlutum. Yfirbragðið er hrátt, unglegt og rokkaralegt með undantekningu frá blómamunstri og öðru í kvenlegri kantinum.

emmanygren1
 emmanygren2
emmanygren3

Skoðið bloggið EmmasCloset


Tískulíf Juliu Restoin-Roitfeld

julia 

Julia Restoin-Roitfeld, dóttir Carine Roitfeld (ritstjóra franska Vogue), deilir áhuga sínum á tísku með móður sinni en hún útskrifaðist úr hönnunarskólanum Parsons í New York árið 2006. Nú starfar hún hjá hönnunarfyrirtækinu ‘Baron & Baron’ og felst starf hennar í listrænni hlið tískuauglýsinga hjá tímaritum, en hún vinnur mikið við grafíska hönnun.

Frá unga aldri hefur Julia alltaf verið uppreisnargjörn í klæðaburði. Á meðan allar litlu frönsku skólastelpurnar voru klæddar í stílhrein föt í hvítu eða svörtu mætti hún í skólann í glansbuxum. Hún er á 27. ári í dag, en þegar hún var um 10 ára fattaði hún úr hvaða tískubakgrunni hún væri í raun komin. Faðir hennar átti fatamerkið ‘Equipment’, og mamma hennar hefur starfað sem stílisti meirihluta ferils síns. Carine tók hana stundum með í myndatökur og fannst Juliu æðislegt að hitta ýmist tískufólk á svo ungum aldri. Hún áttaði sig snemma á því hvers konar hæfileika mamma hennar hafði í sambandi við stíl, en fór samt í gegnum ákveðið mótþróaskeið. Hún hataði þegar mamma hennar sagði að eitthvað væri ljótt og hún vissi að það væri satt - hún vildi samt gera hlutina á sínum eigin forsendum.

Julia finnst áhugaverð völdin sem tískuiðnaðurinn hefur. Þrátt fyrir að föt séu fyrir sumu fólki einungis leið til að hylja líkamann, þá lítur hún á þau sem einhvers konar nútímalist. Henni finnst þau samt þurfa að hafa einhvern tilgang, og viðurkennir að verslunarferðir séu ekki eitt af aðaláhugamálunum. Hún var alin upp í París en býr nú í New York – en þessar tvær borgir búa yfir ólíkri menningu. Henni finnst hún geta klæðst hverju sem er í New York, fólk er ekki eins dómhart. Í París hafa konur ákveðin klassa en í New York eru föt fyrst og fremst skemmtun og fólk er almennt opið fyrir nýjum hugmyndum.

Tom Ford valdi Juliu sem andlit ilmvatns síns ‘Black Orchid’ sem kom út árið 2006. Ford hefur þekkt Juliu síðan hún var lítil og honum fannst gaman að hafa séð hana þroskast í fallega konu. Henni finnst hún vera fullkomin fyrirmynd fegurðar og segist ekki hafa viljað fyrirsætu sem andlit ilmsins, heldur einhverja með áhugaverðan persónuleika. Henni sjálfri fannst mikill heiður að vera beðin um þetta verkefni og fannst það óvænt. Hún tekur það samt mjög alvarlega af því hún lítur upp til Tom Ford, og einnig af því þetta er hans fyrsti ilmur.

Stíll Juliu getur verið svolítið rokkaralegur og líkir um margt til stíl móður sinnar, þótt hennar hafi unglegra og hrárra yfirbragð. Hún nær að klæða línurnar sínar með því að undirstrika það góða. Sjálf segir hún góðan stíl nást með því að klæða sig eftir líkamsvexti og persónuleika. Uppáhaldshönnuðurinn hennar er einnig í uppáhaldi hjá móður hennar, en það er Azzedine Alaia, fyrir það hvernig hönnun hans fer kvenlegum vexti vel. Besta ráðið sem mamma hennar hefur gefið henni er að eltast ekki endalaust á eftir trendum, þau breytast of oft. Þrátt fyrir að versla í hönnunarbúðum og mæta á tískusýningar finnst henni gaman að fara í vintage verslanir, auk þess sem Carine leyfir henni að fara í skápinn sinn – eitthvað sem hún verður alltaf öfunduð af.

juliarestoinroitfeld1
 
juliarestoinroitfeld2

Carine Roitfeld

Carine Roitfeld hefur ekki getað ýmindað sér hvers konar tískuikon hún myndi verða þegar hún hóf sinn feril. Hún byrjaði sem stílisti, bæði hjá franska Elle og sjálfstæð. Eftir að kynnast ljósmyndaranum Mario Testino árið 1986, hófu þau samstarf. Þau unnu að ýmsum auglýsingum og myndaþáttum fyrir bæði ameríska og franska Vogue. Eftir samstarfið með Testino, hóf Carine störf fyrir Tom Ford hjá Gucci og Yves Saint Laurent sem hans helsti tískuráðgjafi. Árið 2001 hafði svo Conde Nast fjölmiðlaveldið samband við hana um að ritstýra Vogue Paris. Hún gegnir þeirri stöðu enn þann dag í dag. 

Það sem er áhugaverðast við hana er líflega framkoman. Hún er þessi týpíska franska kona. Hún eltist ekki við að líta óaðfinnanlega út í fegurð – hárið er alltaf smá messy, augabrýrnar grófar og hún notar ekki mikið af farða. Þrátt fyrir að vera á sextugsaldri er hún ung í anda og útliti. Hún hefur líkama á við tvítuga stúlku og andlitið sýnir ekki mikil merki um öldrun. 

Hún hefur verið sögð ein best klædda kona heims. Stíllinn er elegant en samt fer hún oft á jaðarinn og sýnir hugrekki. Hún spilar leikinn ekki öruggt, heldur blandar snilldarlega saman nútímatrendum við klassískan lúxusklæðnað og tekur áhættu. Hún klæðir sig ekki of unglega en heldur hlutunum samt spennandi. Hún er í tískunni en ekki fórnarlamb hennar. 

Við fyrstu sýn lítur hún út fyrir að spá mikið í klæðaburðinn. En hún hugsar samt ekki mikið um hvaðan hún fær áhrifin. Hún hefur ekki áhuga á að kunna alla tískusöguna út í gegn og þekkja nöfn á hverjum einasta hönnuði – eitthvað sem maður lærir í tískuskóla. Hún segist hafa þetta allt í tilfinningunni, hún veit þegar henni finnst eitthvað spennandi og áhugavert. Eitt er þó víst – hún hefur eitthverja náðartískugáfu og virkilega næmt auga fyrir stíl – eitthvað sem er ekki hægt að læra í skóla. 

carineroitfeld1

Frægðarsól Carine hefur skinið skært allt frá því hún tók við ritsjórastöðunni. Hún endurmótaði blaðið eftir sinni eigin sýn. Franska útgáfan hefur eitthvað fram yfir hinar. Hugsunin á bakvið allt saman er listræn og útkoman er svolítið edgy, hrá, ögrandi og töff. Tímaritið hefur aldrei verið eins vinsælt og akkúrat núna.  

Það hvernig tískan er sett fram er hvað áhugaverðast við Vogue Paris. Hún er sett beinskeytt fram, þér er ekki kennt hvernig þú átt að klæða þig eftir líkamsvexti eða eftir einhverjum ákveðnum aldri. Það er ekki mikið gert til að láta tískuna verða aðgengilegri fyrir lesendur. Það eru ekki Hollywood stjörnur sem prýða forsíðurnar, heldur fyrirsætur. Það gengur ekki allt út á tískuna sem söluvarning, heldur sem listform.  

Carine stíliserar sjálf margar tískuseríur fyrir tímaritið. Hún byrjar ekki á byrjuninni í ferlinu, hún hugsar ekki um fötin fyrst. Hún segist búa til ákveðna sögu í hvert skipti sem hún stíliserar. Hún lítur á fyrirsætuna og býr til kvikmynd í höfðinu – hver er þessi stelpa og hvaða sögu býr hún yfir. Sjálf segist hún elska að blanda saman kvenlegu við karlmannlegt. Það er mjög franskt og kynþokkafullt.

Í heimi Carine eru fyrirsætur aldrei of horaðar og demantar aldrei of dýrir. Tískan er hennar heimavöllur. Hún lifir og andar í heimi þar sem flestir eru óöruggir með sjálfan sig – henni líður hvergi betur. Í þessum heimi hefur hún völd, hún er fyrirmynd – hún er drottning tískuheimsins.

carineroitfeld2

Fyrirsætur baksviðs

Nú eru allar tískuvikurnar fjórar í París, Mílanó, New York og London afstaðnar og þótt það sé alltaf gaman að sjá það sem hönnuðurnir sýna hverju sinni, er einnig skemmtilegt að sjá hverju fræga fólkið í fremstu röðinni klæðist og fyrirsæturnar baksviðs.

Sérstaklega finnst mér stíll fyrirsætna mjög flottur. Þær hafa náttúrulega margar hverjar nánast fullkominn vöxt og því fer þeim nánast allt, en það er samt hægt að fá góðar hugmyndir frá þeim. Klæðnaður þeirra einkennist mikið af casual, basic flíkum sem virðast vera í ódýrari kantinum - því er svo blandað saman við hönnunarvörur (sem þeim er reyndar stundum gefið). Gallabuxur, leggings og sokkabuxum er klæðst við þægilega víða boli, casual kjóla og fínar prjónaflíkur. Yfirhafnir eru oftar en ekki leðurjakkar og blazer jakkar, og stígvél eru vinsælt skótau.

modelstyleny

Efst til vinstri er Sasha Pivovarova baksviðs hjá Anna Sui, gróf stígvélin harmonera vel við mildu litina að ofan. Næst er Behati Prinsloo baksviðs hjá Derek Lam, einnig í nokkuð grófum stígvélum og þröngum kjól innan undir popp/rokk bol. Abbey Lee baksviðs hjá Calvin Klein í síðum, víðum bol og grófri peysu yfir - kósý lúkk en samt töff. Til hægri er svo Sheila Marquez baksviðs hjá Matthew Williamsson, gráar oversized buxur, leðurjakki og peysa.

Í neðri röð til vinstri eru Kasia Struss og Vlada Roslyakova baksviðs hjá Donna Karan, þær eru smart í gallabuxum, peysu og jakka - virkilega 'easy going'. Yfir í aðeins fínna, Agnete Hegelund baksviðs hjá Marc Jacobs í fínum kjól og jakka, þunn peysan yfir kjólinn gefur jarðbundnara útlit. Maryna Linchuk baksviðs hjá Rag&Bone í jakka í skólabúningastíl og hnéháum stígvélum, Prada taskan er náttúrulega bara flott. Coco Rocha til hægri baksviðs hjá Rag&Bone, mjög laid back snið og plain litir.

modelstylemilano

Chanel Iman baksviðs hjá Bottega Veneta er lengst til vinstri í skemmtilegri samsetningu af dökkólívugrænum og vínrauðbleikum. Við hlið Chanel er Mariacarla Boscono baksviðs hjá Missoni í glansandi leggings við lakkskó og flottum jakka. Inguna Butane baksviðs hjá Bottega Veneta í dökkgráum jakka í karlasniði við ljósgrá háhæluð stígvel í snákaskinni. Til hægri, þær Daiane Conterato og Carolina Pantoliani baksviðs hjá Moschino eru flottar í biker leðurjakka og víðum peysujakka.

modelstyleparis

Vlada Roslyakova er í litríkum bol og klút baksviðs hjá Hussein Chalayan. Alana Zimmer baksviðs hjá Karl Lagerfeld í týpískri gallabuxna og blazer jakka samsetningu. Næst er Maryna Linchuk baksviðs hjá Viktor&Rolf í gallabuxum í rosalega flottum bláum lit og loðvesti, aftur með Prada töskuna með glansleðuráferð.


Rumi

Stíll vikunnar er Rumi, 24 ára gömul stelpa frá San Diego. Rumi verslar mikið vintage og í ódýrum verslunarkeðjum, einnig eyðir hún einstöku sinnum í hönnunarmerki í töskum og skóm, en það tvennt getur gefið gæfumuninn.

Það sem gerir stíl hennar kannski einna mest sérstakan er samsetningin. Henni líkar þegar fólk er ekkert endilega í öllu flottu en samsetningin lætur það virka og gerir það smart, sem er góð lýsing á hennar eigin stíl. Hún poppar útlitið oft upp með litum, munstrum eða flottum skóm og töskum.

Eitt gott ráð frá henni sem hún notar til að fríska upp á lúkkið án þess að kaupa eitthvað nýtt, er að draga fram eitthvað sem hún hefur ekki klæðst í einhvern tíma og svo ‘neyðir’ hún sig til að stílisera það öðruvísi en hún hafði áður gert og þar af leiðandi verður það ferskt aftur. Það er því í raun samsetningin sem skiptir öllu máli.

Hún er með verslun á Ebay sem kallast
Treasure Chest Vintage þar sem hún selur allar vintage vörur sem hún hefur keypt en eru ekki í hennar númeri. Það er hægt að finna margt frá 7., 8. og 9.áratugnum og að mínu mati er margt flott að sjá. Hún sendir til annara landa ef einhverjir eru áhugasamir.

stillrumi1
 
stillrumi2

stillrumi3
stillrumi4

Sjáið fleiri myndir á blogginu hennar Fashion Toast


Lisaplace

Það er alltaf gaman að rekast á bloggsíður þar sem fólk setur myndir af klæðnaði hvers dags, og ennþá skemmtilegra þegar viðkomandi hefur flottan persónulegan stíl. Ég hef rekist á nokkrar sem mér finnst áhugaverðar og fylgist reglulega með nýjum færslum. Ein af þessum er sænsk stelpa sem á bloggsíðuna Lisaplace.

Það sem er kannski áhugaverðast við hana er að hún er fædd '94, sem sagt á 14.ári. Hún hefur þegar myndað virkilega flottan stíl þar sem hún blandar skemmtilega saman fötum frá stórum keðjum eins og H&M og Mango við vintage aukahluti eins og skó, töskur og klúta. Það er gaman að sjá svona unga stelpu sem tekur svolitla áhættu í fatavali og er greinilega ekki að reyna að falla inní hópinn.

Fyrir utan að setja inn myndir af fötum hvers dags má sjá virkilega flottar og listrænar ljósmyndir eftir hana. En hér á eftir koma svo myndir af flottum outfitum að mínu mati. Hún gæti ábyggilega veitt mörgum innblástur.

lisaplaceblog1
 
lisaplaceblog2
lisaplaceblog3
 
lisaplaceblog4
lisaplaceblog5

Innblástur frá tískufólkinu

Eins og þið hafið eflaust tekið eftir af fyrri bloggum, þá var tískuvikan í New York í síðustu viku. Eins og það getur nú verið gaman að sjá hverju fræga fólkið klæðist á sýningunum, þá jafnast ekkert við myndir af alvöru tískufólkinu. Sem sagt fólkið sem vinnur á tískutímaritunum, innkaupstjórar tískufatnaðar og almenna tísku 'insiders'. Því þetta er fólkið sem lifir og hrærist í tískuheiminum og getur verið virkilega gaman að fá innblástur frá þeim.

Scott Schuman er eigandi bloggsíðunnar The Sartorialist, sem er svokallað 'street style' blogg eða blogg um götutískuna. Hann hefur undanfarnar tískuvikur í New York myndað tískufólkið fyrir Style.com, auk þess að mynda sjálfur venjulegt fólk á götum New York, fyrir sitt eigið blogg þess á milli.

Hér á eftir koma myndir sem Scott tók í síðustu viku og hef ég safnað þeim saman og sett í nokkur trend.

streetstyle1

Buxur þurfa alls ekki að vera bara svartar. Mustard gulu buxurnar til vinstri hafa akkúrat þá sídd sem sást mikið á sýningunum fyrir sumarið og verður ábyggilega flott trend. Þessi litur fer mjög vel með navy bláum og ljósbrúnum, en þó skal varast að para svona erfiðan lit við mikið af sterkum litum. Buxurnar í miðjunni eru í einhvers konar beige lit og fara afar vel við gráan. Þær eru virkilega smart sniðnar, ekkert of þröngar en heldur ekki það víðar að þær séu sniðlausar. Lúkkið til hægri er svo frekar plain, en það sem er kannski smartast eru skórnir.

c_documents_and_settings_birgir_my_documents_my_pictures_streetstyle2_435698

Skór, skór, skór. Hvar værum við án þeirra? Eitt það flottasta sem um getur þegar kemur að því að setja statement eru litríkir sky-high skór. Ef skórnir eiga að vera aðalatriðið þá er best að vera ekkert með fötin of busy, ekkert sem gæti tekið athyglina af skónum. Það getur líka verið mjög flott að vera í háum opnum skóm við buxur á daginn eins og stelpan til hægri í staðinn fyrir að vera alltaf í þeim við sparitilefni.

streetstyle3

Stór og grófur trefill er algjörlega málið í vetur. Kannski aðeins of seint að fara að kaupa hann núna, þar sem fer vonandi að hitna bráðum (vonandi). Mér finnst flottastur þessi í miðjunni, hlýr og góður. Ekki sakar líka að vera í hlýrri peysu þegar maður er nánast berleggjaður í mínípilsi. Einnig er hann smart þessi til hægri, hann er kannski aðeins þynnri, en þá er bara um að gera að vefja hann aðeins meira um hálsinn.

streetstyle4

Sterkir litir geta svo sannarlega birt upp á svartan klæðnað, hvort sem það er í formi tösku, pils eða klúts. Þessi fjólublái er mjög flottur og einnig þessi fagurblái. Mér finnst alltaf aukahlutir í litum eins og klútar algjörlega nauðsynlegir fyrir svartklæddar dömur.

streetstyle5

Leðurjakkar eru náttúrulega mjög töffaralegir og passa við nánast allt. Mér finnst þeir persónulega flottastir þegar þeir eru í svona 'biker' sniði, þ.e. frekar stuttir, án stroffs og oft með rennilásinn aðeins til hliðar. Þeir eru flottir við dömulega kjóla, til að gera lúkkið meira hrárra í stað ofur kvenlegs. Þessi til vinstri er reyndar úr rússkinni sýnist mér, en hafði hann engu að síður með þar sem hann er í týpísku biker sniði.

streetstyle6

Loðfeldur er hálfgjört must á veturna. Hann er náttúrulega rosalega hlýr auk þess að vera smart. Hvort sem það er vesti, jakki eða loðkragi þá heldur hann góðum hita, sérstaklega ef maður er berleggjaður eða í þunnum sokkabuxum í nokkra stiga frosti. Og hann er klárlega flottari en dúnúlpa. Loðfeldi er hægt að fá í mörgum vintage verslunum, en þó skal forðast síðar loðkápur og í raun er allt styttra en að mjöðmum best.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband