Færsluflokkur: Bloggar

Tískuheimur.is

Nýr tískuvefur hefur opnað. Endilega kíkið.

logo2

www.tiskuheimur.is

Á Facebook: www.facebook.com/pages/Tiskuheimuris/62168186970


Tískuveldi Philip Green

philipgreenAuðjöfurinn Philip Green hefur verið mikið í fréttum bæði hér og í Bretlandi að undanförnu. Green á nú þegar stóran hluta af 'high street' keðjum á borð við Topshop, Topman, Miss Selfridge, Evans og Dorothy Perkins - undir Arcadia Group. Hann er sjöundi ríkasti maður Bretlands og er talinn ráða yfir stórum hluta fatakeðjubransans þar úti. Fjaðrafokið í kringum hann, er vegna áætlana um að tvöfalda veldi sitt, og kaupa Baug. En Baugur á nú þegar stóran hluta af fatakeðjum, þar á meðal Oasis, Warehouse, Whistles, Shoe Studio og All Saints. Áhyggjurnar liggja yfir því að hann gæti, eftir kaupin á Baugi, haft völd yfir miklum meirihluta af breskum tískuvörukeðjum.

Jane Shepherdson vann fyrir Green í mörg ár og átti stóran þátt í að koma Topshop á þann stað sem það er í dag. Árið 2007 sagði hún af sér og var ástæðan talin vera ósamkomulag milli hennar og Green. Hún starfar nú undir Baugi, sem forstjóri Whistles, og eru margir spenntir að sjá hvort hún muni fá gamla yfirmanninn aftur. Það verður allavega gaman að sjá hvernig allt fer ef Green kaupir Baug og veldið hans stækkar til muna.

Heimild


Ný útgáfa af fyrra bloggi

Ég hef ákveðið af ýmsum ástæðum að skipta um nafn á bloggsíðunni minni. Þetta er sem sagt ný útgáfa af tiska.blog.is. Ég mun færa eitthvað af efni yfir á þetta blogg og mun svo eyða hinu eftir um mánuð eða svo. Ég vona samt að þetta verði ekki of mikið vesen.

Annars vil ég þakka fyrir öll kommentin sem ég fékk á hitt bloggið. Það er yndislegt að vita að það er einhvers metið sem maður er að gera.

Ég vona að þið munið njóta efni bloggsins og auðvitað mun ég halda áfram á sömu braut og á hinu blogginu :)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband